Fundargerð – Aðalfundur Hollvinasamtaka Heilsustofnunar 19. maí. 2026.

Fundargerð – Aðalfundur Hollvinasamtaka Heilsustofnunar haldinn í Kapellunni á
Heilsustofnun þann 19. maí. 2026 kl. 20.00
Mættir: Til aðalfundar komu 17 fundarmenn.

Setning fundar. Ólafur Hjálmarsson formaður stjórnar setti fundinn og bauð gesti
velkomna. Hann lagði til að Drífa Hjartardóttir verði fundarstjóri og var það samþykkt.

Fundarstjóri, Drífa Hjartardóttir þakkaði traustið og lagði til að Ingi Þór Jónsson ritaði
fundinn og það var samþykkt. Fundurinn er löglega boðaður og gengið var til dagskrár.
Skýrsla stjórnar.

Ólafur Hjálmarsson formaður flutti skýrslu stjórnar. Á síðasta starfsári var lögð áhersla á að
styðja við starfsemi Heilsustofnunar með beinum hætti og voru keypt tæki og búnaður
fyrir um 4 milljónir króna.

Tæki og búnaður:

  • Viðhald á reiðhjólum
  • Pool borð – endurnýjun
  • Fjölþjálfi – Nustep
  • Þrekhjól
  • Áhöld fyrir slökun í vatni
  • Hjartastuðtæki
  • Leikfimivörur
  • Blóðþrýstingsmælir
    Húsgögn og aðbúnaður:
  • Stólar í Rúv salinn
  • Lazy Boy í Auðarsal
  • Sófasett
  • Spil til afþreyingar
    Viðburðir og menning:
  • Kvöldvökur – Hjörtur Ben, Sigurður Skúlas, Sönghópar o.fl.
  • Bingó – Arna Dal – tekjur runnu til Hollvinasamtakanna
  • Jólabingó – tekjur runnu til Hollvinasamtakanna

Auk þess hefur stjórn félagsins sinnt öðrum verkefnum fyrir hönd Hollvina, t.d. verið með
jóla Bingó sem var nú reyndar i janúar s.l. Undirritaður sótti aðalfund Náttúrulæknafélags
Íslands fyrir hönd félagsins og var það mjög gagnlegt. Einnig sagði hann frá golfmóti hér í
Hveragerði á vegum NLFÍ og NLFR sem margir sóttu.
Á árinu 2025 var stór áfangi í sögu okkar en þá var haldið upp á 70 ára afmæli
Heilsustofnunar og jafnframt 20 ára afmæli Hollvina Heilsuhælisins.
Það var okkur öllum mikið gleðiefni og góð áminning um það mikilvæga starf sem unnið
hefur verið í gegnum tíðina.
Staða félagsins er góð. Félagsmenn eru nú um 1060 talsins og árgjöldin hafa skilað sér vel.
Það er okkur mikill styrkur að hafa svona breiðan hóp bakhjarla. Árgjaldið er 3500 kr.
Fyrir hönd stjórnar þakka ég stjórn og starfsfólki Heilsustofnunar, öllum sjálfboðaliðum og
ykkur félagsmönnum fyrir samstarfið og stuðninginn
Heilsuhælið í Hveragerði er ein af grunnstoðum bæjarfélagsins. Það hefur verið mér mikill
heiður að fá að leiða starf Hollvina Heilsuhælisins síðastliðin þrjú ár.
Ég vil sérstaklega þakka stjórninni fyrir frábært samstarf á þessum tíma. Okkar samvinna
hefur gengið ákaflega vel og ég kann ykkur bestu þakkir fyrir stuðninginn.

Einnig vil ég þakka Inga Þór fyrir ómetanlega aðstoð og ráðgjöf í gegnum árin sem og
þakkir til Elínar Hörpu fyrir hennar störf fyrir samtökin en hún hefur séð um að halda utan
um félagaskrána okkar af mikilli prýði, skráð nýja félagsmenn og haldið öllu í góðri reglu.
Ég hef nú setið sem formaður í þrjú ár og er því tíma mínum sem formaður lokið
samkvæmt samþykktum félagsins.

Ég gef hins vegar kost á mér áfram til starfa fyrir félagið og býð mig fram sem varamann í
stjórn, ef fundurinn kýs svo. Ég hvet ykkur öll til að halda áfram að vera bakhjarlar
Heilsustofnunar. Saman gerum við gott starf enn betra.
Takk fyrir.
Ólafur Hjálmarsson formaður Hollvinasamtaka Heilsustofnunar

Reikningar félagsins
Margrét Grímsdóttir fór yfir reikninga félagsins, félögum hefur fjölgað og eru 1.057 skráðir
í Hollvinasamtökin. 698 greiddu árgjaldið í fyrra. Tekjur á síðasta ári voru 3.729.776 kr. og
þar af voru 995.480 kr. sértekjur vegna bingóhalds og framlag listamanna sem seldu verk
sín í nafni Hollvina. Á árinu 2025 keyptu Hollvinir tæki og búnað fyrir 2.041.003 kr:
Fundarstjóri bar skýrslu stjórnar og reikninga félagsins upp til samþykktar, samþykkt
samhljóða.

Fundarstjóri bauð Ólafi Hjálmarssyni að stýra næsta lið á dagskrá

Stjórnarkjör
Ólafur fór yfir hvernig núverandi stjórn er skipuð og lagði fram eftirfarandi tillögur um
stjórn Hollvina:

Til formanns: Drífa Hjartardóttir

Til tveggja meðstjórnenda í tvö ár:
o Valdimar Júlíusson
o Þuríður Guðrún Hauksdóttir

Til tveggja varamanna í eitt ár:
o Ólafur Hjálmarsson
o Ingibjörg Jónsdóttir

Skoðunarmenn reikninga til eins árs
o Indriði Helgason
o Þorkell Sævar Guðfinnsson
Engar aðrar tillögur lágu fyrir fundinn og voru tillögurnar samþykktar samhljóma
Lagabreytingar. Engar lagabreytingar lágu fyrir.
Árgjald, samþykkt að árgjald yrði óbreytt árið 2026, 3.500 kr.

Önnur mál
Ekkert var rætt undir þessum lið og fundi var slitið kl. 20:20
Fundaritari
Ingi Þór Jónsson