Aðalfundur var haldinn í Hollvinasamtökum Heilsustofnunar NLFÍ, 25. apríl. Farið var yfir verkefni liðins árs og hafa Hollvinasamtökin stutt vel við bakið á Heilsustofnun með kaupum á ýmsum búnaði og húsgögnum. Um 770 manns greiddu árgjald á síðasta ári og einnig komu fjárframlög frá einstaklingum og fyrirtækjum.
Stjórn var kosin og er skipuð eftirfarandi fólki.
- Björk Vilhelmsdóttir, formaður
- Valdirmar Lárus Júlíusson
- Margrét Grímsdóttir
- Sigrún Sigurðardóttir
- Þuríður Guðrún Aradóttir
Í varastjórn eru:
- Sveinn Rúnar Hauksson
- Ólafur Hjálmarsson